Færsluflokkur: Bloggar

Og þetta á að vera einn af ráðamönnum þjóðarinnar

Og þetta á að vera einn að ráðamönnum þjóðarinnar. Hvernig getur hún sagt að hagsmunum sé fórnað fyrir skynsamlega nýtingu auðlinda hafsins. Er henni virkilega sama um það að fiskistofnar landsins fari að mestu í ginin á þessum skepnum. Hvaða hagsmunir eru það sem verið er að fórna, eru það vitleysis "aurarnir" sem búið er að setja í öryggisráð sameiniðuþjóðanna. Ef menn eru hræddir um að markaðir tapist þá er engin hætta á því, því við getum selt allan þann fisk sem við veiðum og gott betur. Ekki lifum við á hvalaskoðun þegar við þurfum að hætta að veiða fisk vegna rányrkju hvalanna. Ég held að ef það er tekið með í reikninginn hvað við gætum gert úr þeim fiski sem hvalurinn étur þá, það er þeir fiskar sem ekki komast til hrygningar til að viðhalda og stækka fiskistofnana, þeir fiskar sem við gætum veitt að auki og búið til verðmæti úr, þá erum við að tala um meira verðmæti en hvalaskoðun. Menn eru alltaf að tala um að hvalaskoðun skili meiru en hvalveiðar menn verða að taka allt með í reikninginn. Ég er ekki á móti hvalaskoðun, sem er í sjálfu sér ágæt viðbót við hið daglega og ég er á því að það hefði átt að loka svæðum fyrir hvalveiðum þar sem eru hvalaskoðunarfyrirtæki að störfum og hafa verið í einhvern tíma. En er hlynntur og mjög hlynntur skynsamlegri nýtingu hvalastofnana við Ísland.
mbl.is Hagsmunum fórnað með veiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt að komi fram.

Ég styrki alltaf allar landssafnanir og undartekningarlaust símahringingar fyrir góð málefni eins og t.d. Barnaspítala Hringsins svo eitthvað sé nefnt.

Kemur ekki til greina

Ég ákvað að hætta að styrkja þá aðila sem eru með safnanir, auglýstar í útvarpi eins og UNICEF gerði hér fyrr í vetur með vatnssölu á veitingahúsum, það var einungis hægt að fá þessi vatnsglös á veitingastöðum í Reykjavík, enn eitt dæmið um það að landsbyggðin skiptir ekki máli. Það pirrar mig mjög svo þegar svona kemur upp, eins það þegar vinningar hjá mörgum af þessum sem eru með getraunir t.d. hjá Hemma Gunn, sem er þó með mjög svo skemmtilegan þátt , hef ekkert út á hann sjálfan að setja, er eini vinningurinn sem  hjá honum er, er út að borða á Humarhúsin, ef ég man rétt, það kostar fólk of mikið að ferðast suður til þess að njóta vinningsins. Það eru til mörg dæmi um þetta.  
mbl.is UNICEF á Íslandi með söfnun vegna neyðaraðstoðar í Búrma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neyðist til þess að vera heima

Jæja nú verð ég víst að vera heima í 4 vikur í það minnsta samkvæmt læknisráði.

Rifbeinsbrotnaði fyrir ca. 10 dögum en hélt samt áfram að reyna að róa, það bara gengur ekki.

Þannig að ég ætlað að reyna að hressa uppá þessa síðu mína og rita eitthvað smá vonandi til ánægju fyrir einhverja og eflaust til gremju fyrir aðraWink  


Í mál við lögregluna

Ef satt er að lögreglan hafi sagt að hann væri stórhættulegur morðingi, held ég að lögreglan sé á villi götum og ættu viðkomandi lögreglu að segja af sér hið snarasta. Þetta er ólíðandi framkoma hjá lögreglunni. Ég styð þessar aðgerðir bílstjóranna, þessu vökulög eru bara rugl, 4 1/2 tími, þá skalt þú hvíla þig í 45 mín, það væri lítið mál að breyta þessu þannig að, þegar bílstjóri væri búinn að keyra þennan tíma, væri þeim skylt að stoppa í x mín á ákveðnum stöðum, t.d. bíll sem er á leið Reykjavík - Akureyri þá væri hægt að ákveða að Staðarskáli,Víðihlíð, Blönduós, Varmahlíð væri þeir staðir sem skyldi stoppa á eftir að þessum tíma væri náð. En afhverju mega þeir samt ekki bara keyra eins og við hin, sem t.d erum búin að vera að vinna um daginn og brunum svo í ferðalag á eftir. Kílómetragjaldið er í raun bara gamli þungaskatturinn, veit ekki betur en að hann hafi verið feldur niður fyrir okkur hin sem keyrum á díselbílum. Þetta er í raun auka skattur á okkur líka því þetta bætist á flutningskostnað, sem leiðir af sér hærra vöruverð o.s.f.v.

  


mbl.is Bílstjórar: „Við höldum áfram"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Max vanhæfur

Mér finnst menn fara offari í ummælum sínum varðandi þetta mál. Það hefur verið brotin sú grundvallar regla að menn sé saklausir uns sekkt er sönnuð. FIA hefur viðurkennt að þeir hafa engar sannanir fyrir því að Mclaren hafi notað þessa uppl. samt hljóta þeir þunga refsingu. Annað sem mér finnst umhugsunarvert, það er þáttur Max Mosley, en samkvæmt íslenskum lögum væri stór vafi á því hvort hann væri hæfur til þess að dæma í þessu máli vegna fyrri ummæla.

 


mbl.is Mosley vildi sparka Hamilton og Alonso úr keppni ökuþóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Þórður
Þórður

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband